SSG Contractor Safety Finland

155 EUR
Verð á þátttakanda
""
Gerð
Fer fram á netinu
Tímakvarði
180 min
Gildistími
3 ár
Aðgengileg tungumál
Info
Enska, Sænska, Finnska, Þýska, Pólska, Tékkneska, Rússneska, Króatíska

SSG Contractor Safety Finland er undirstöðunetnámskeið í öruggum starfsháttum, ætlað verktökum og starfsfólki í iðnaði. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu um mikilvægustu þætti öruggra starfshátta, forvarna gegn slysum og ábyrgð á jafnt eigin öryggi sem öryggi annarra á vinnustaðnum.

Námskeiðið fer fram á netinu og þú getur lokið því þegar þér hentar. Að loknu prófi úr efni námskeiðsins færðu sent rafrænt vottorð og persónulegt aðgangskort frá SSG, sem er gilt í þrjú ár. Þetta er einföld og skilvirk leið til að stuðla að öruggara vinnuumhverfi í iðnaðargeiranum, aðlagað að finnskum aðstæðum.

Efni námskeiðsins

Meðal þess sem námskeiðið fjallar um er:

  • IFyrir komu: Við förum yfir það sem þú þarft að hafa í huga áður en þú mætir á vinnusvæðið, svo sem nauðsynlegar persónuhlífar og almennar starfsvenjur og verkferli.

  • Öruggur vinnustaður: Þessi hluti fjallar um öryggismenningu og fjallar einnig um hvernig taka skal á áreitni og einelti á vinnustað.

  • Hættur á vinnustað: Í þessum hluta er fjallað um mismunandi gerðir hættulegrar vinnu, svo sem heita vinnu, vinnum við rafmagn og vinnu í mikilli hæð. Einnig er fjallað um vinnu með íðefni og aðstæður þar sem starfsmaður vinnur einn.

  • Umhverfisvænir starfshættir: Við fjöllum um endurvinnslu, endurnýtingu og rétta meðhöndlun úrgangs, af mismunandi gerðum og efniviði.

  • Þegar slys ber að höndum: Hér er fjallað um björgunaraðgerðir, fyrstu hjálp, slökkviaðgerðir og rýmingu. Einnig er fjallað um mismunandi gerðir viðvarana og neyðarhringinga.

Gerir þín starfsstöð kröfu um að starfsmenn hafi lokið SSG Contractor Safety Finland?

Leita eftir starfsstöð, staðsetningu eða landi.

Framkvæmd

Námskeiðið fer fram á netinu og þar eru stuttir upplýsingaþættir fléttaðir saman við myndefni, raundæmi, sviðsmyndir og verkefni, sem er ætlað að stuðla að virkri þátttöku nemenda. Að námskeiði loknu er hægt að sækja rafrænt prófskírteini.

Markhópur

Námskeiðið hentar verktökum sem starfa á mörgum mismunandi sviðum í iðnaðargeiranum.

Viltu vita meira?

Sendu inn upplýsingar þínar og við höfum samband fljótlega

Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi viðPersónuverndarstefna SSG